Saturday, October 12, 2013

Takk elsku öll!

Ég á svo yndislegt fólk í lífi mínu. Frá því ég greindist hef ég fengið alls konar fallegar gjafir, skilaboð og símtöl. Mér þykir óendanlega vænt um þetta allt. Bækur, nammi, listaverk, dekurdót, ipad, skemmtiefni í ýmsu formi, matur og grín. Þið eruð yndisleg. Svo fékk ég handgert sjal og lukkuarmband alla leið frá Tyrklandi.
Síðast en ekki síst hef ég grætt ómetanlegar samverustundir með vinum okkar og fjölskyldu. Takk fyrir þetta allt!


3 comments:

  1. Yndislegt að fá að fylgjast með þér elsku vinkona :*

    ReplyDelete
  2. jeiiiii þetta tókst :) nú verð ég alltaf að commenta!

    ReplyDelete
  3. Sæta spæta. :) Æði að fá að fylgjast með. :) Gangi þér rosalega vel, mín kæra. :)

    ReplyDelete