Tuesday, February 18, 2014
Good times
Thursday, November 28, 2013
Hláturmeðferð hjá IH
Tuesday, November 19, 2013
Monday, November 4, 2013
Leikurinn lítill/stór haus og ökuhæfni sjúklinga
Ih stóð enn eina vaktina og hafði svo ljómandi gaman af (sjá myndir af leiknum little big head). Snakk, kristall, slúður og spjall, Joe and the juice, kaffi to go og skutl á office.
Little Inga var með smá áhyggjur af því að lyfin gætu haft áhrif á ökuhæfni mína þar sem ég var næstum búin að keyra á bíl sem var lagt við hliðina á mínum. Hafði lítið með lyfin að gera. Hef takmarkaða hæfileika í bílastæðastúss. Nema hvað að við ákváðum að kíkja í kringluna og á Joe and the juice. Ég rúnta um bílastæðið og fer nálægt innganginum því samkvæmt kenningu náins ættingja eru oft laus stæði þar. Ég er að segja IH frá kenningunni og vandræðum við að leggja í stæði. Almennt. Hún tekur svona líka undir og samsinnir og segir svo að Já af öllum hennar vinkonum sé ég líklega sú sem er verst að leggja.
Tuesday, October 29, 2013
Brjálað að gera
Elsa frænka kíkti við og þá var tekin myndasyrpa eftir serious förðunarumræður.
Nú tóku við önnur vaktaskipti og Inga Huld tók við sjúklingnum með slúður og skemmtilegheit. Það er bara gaman að þessu. Ég sótti svo strákana til parents og í dinner hjá Obbu og Ágústi á heimleið :) Heppnust í heimi. Takk.
![]() |
| Ásta Sóllilja kom færandi hendi |
![]() |
| Elsa frænka kom sterk inn og passaði upp á allt væri ok hjá frænku |
![]() |
| IH mætt í stuði! |
Monday, October 21, 2013
Mánudagur til meðferðar
Mamma fékk að fylgja í dag. Við ræddum um förukonur á Austfjörðum á meðan mamma prjónaði og ég lék mér í candy crush. Svo tók við æsispennandi öku- og kaffihúsaferð. Mamma kemur mér á óvart í ökuhæfni (sérstaklega þegar hún leggur í bílskýlinu en margir þekkja vel vandann við að leggja - almennt séð). En það sem truflaði mig helst var sólin - svo lág þið skiljið. Nú vill móðir mín að ég horfi á spaugstofumenn. Alþingi er í fríi vegna kjördæmaheimsókna. Svo veltum við auðvitað fyrir okkur hvar Sigmundur er. Það er efni í aðra færslu.
Monday, October 14, 2013
1001 slökunaraðferð
Þriðja meðferð. Þóra slökunarþjálfi og lífsnautnasérfræðingur. Með kristal og Tópas og skemmtisögur.






